Verkefnið „Stofa 13“ er nýtt úrræði í Öldutúnsskóla sem ætlað er börnum með einhverfu á yngsta- og miðstigi. Markmið verkefnisins er að skapa aðstæður þar sem hægt er að veita einstaklingsmiðaða kennslu eða kennslu í litlum hópum í rólegu, skipulögðu og öruggu umhverfi. Í „Stofu 13“ er sérstök áhersla lögð á að mæta þörfum barna með einhverfu, meðal annars með sérsniðnum námsgögnum og leikefni sem styður við tjáningu, einbeitingu og skynúrvinnslu. Styrkur verkefnisins er veittur fyrir skólaárið 2026–2027. Tengiliður og höfundur verkefnisins: Hugborg P. Erlendsdóttir Deila Tísta