Nemendur í 10. bekk hafa verið að vinna að verkefni í samfélagsfræði þar sem þau bjuggu til sitt eigið samfélag.
Þau kynntu verkefnið sitt og urðu að byggja upp samfélag frá grunni. Þau bjuggu til lög og réttindi, settu upp efnahagskerfi og stjórnskipan. Einnig áttu þau að setja upp velferðakerfi og samfélagslega ábyrgð. Hvert og eitt samfélag varð einnig að fá áskorun eins og náttúruhamfarir, loftslagsbreytingar, fólksfjölgun eða skort á vatni og mat. Í lokin áttu þau að tengja barnasáttmálann og heimsmarkmiðin inn í verkefnið.
Verkefnið samanstóð af spurningum til þess að svara, búa til kynningu og búa til afurð. Margir hópar bjuggu til samfélag í Minecraft, sumir bjuggu til líkan, listaverk eða veggspjöld.