Síðustu dagar skólaársins 2025–2026 voru hátíðlegir í Öldutúnsskóla. Útskrift nemenda í 10. bekk fór fram við hátíðlega athöfn í sal Flensborgarskólinn þriðjudaginn 9. júní. Að þessu sinni útskrifuðust 73 nemendur, glæsilegur hópur sem hefur sett skýran svip á skólastarfið undanfarin tíu ár. Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur, þrautseigju, seiglu og framlag til skólasamfélagsins. Kór Öldutúnsskóla flutti nokkur lög og þær Salka Guðrún og Elfur Íris fluttu af mikilli list verkið Schindler’s List eftir John Williams á selló og þverflautu. Þá flutti Fjóla Huld fallega og áhrifamikla kveðjuræðu fyrir hönd útskriftarnemenda. Við þökkum útskriftarnemendum kærlega fyrir samfylgdina og samstarfið í gegnum árin og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Skólaslit nemenda í 1.–9. bekk fóru fram við hátíðlega athöfn í Öldutúnsskóla miðvikudaginn 10. júní. Að lokinni athöfn fóru nemendur með umsjónarkennurum sínum í heimastofur þar sem þeir áttu saman notalega stund áður en haldið var út í sumarið. Nemendur eru nú komnir í sumarfrí og mæta aftur til skóla þriðjudaginn 25. ágúst. Starfsfólk Öldutúnsskóla þakkar nemendum og foreldrum kærlega fyrir gott samstarf á skólaárinu 2025–2026 og óskar öllum gleðilegs sumars og ánægjulegrar samveru á komandi mánuðum. Deila Tísta