Útskrift nemenda í 10. bekk verður í Flensborg þriðjudaginn 9. júní kl. 16:30 Skólaslit nemenda í 1. – 9. bekk verða miðvikudaginn 10. júní Nemendur í 1. – 7. bekk mæta í sína heimastofu, fara með umsjónarkennara á athöfn í miðgarði skólans og að lokinni athöfn þar fara nemendur aftur í heimastofu. Nemendur í 8. og 9. bekk mæta í sal skólans og síðan í heimastofur með umsjónarkennara. Athafnir eru sem hér segir: Kl. 8:10 – Nemendur í 1. og 2, bekk Kl. 9:00 -Nemendur í 3. og 4. bekk Kl. 10:00 – Nemendur í 5.-7. bekk Kl. 11:00 – Nemendur í 8. og 9. bekk Foreldrar eru hjartanlega velkomin! Nemendur þurfa að mæta í sína heimastofu ekki seinna en 5 mínútum fyrir athöfn í miðgarði. Klæðnaður nemenda og foreldra þarf að miðast við að vera utandyra í hálftíma. Við fylgjumst með veðurspánni! Deila Tísta