Kór Öldutúnsskóla er lentur á Íslandi eftir vel heppnað tónleikaferðalag til Desenzano og Maderno á Ítalíu. Allir glaðir og ánægðir eftir frábæra frammistöðu. Bestu börnin, frábært tónlistarfólk sem átti hug og hjörtu heimamanna hvert sem þau komu. Framundan er afmælisfögnuður í Norðurljósum Hörpu 24.maí kl. 16:00. Fram kemur með kórnum fjölda tónlistarfólks sem hefur fengið tónlistaruppeldi í Kór Öldutúnsskóla. Viðburðurinn er í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar og bera titillinn; Barnaómur í 60 ár Kór Öldutúnsskóla. Miðasala á Tix Deila Tísta