Í dag var umhverfisdagur Öldutúnsskóla. Hann var nýttur í að nemendur heimsóttu ýmis græn svæði í Hafnarfirði. Eins og t.d. fótboltavöllinn í Setbergi, Lækjarbotna, Ástjörn og Hellisgerði svo eitthvað sé nefnt. Veðrið var með okkur í liði og allir fóru glaðir heim. Í lok skóladagsins var svo boðið upp á grillaðar pylsur og safa. Krakkarnir í 10. bekk sáu um að grilla ofan í alla. Deila Tísta