Síðastliðna tvo daga hafa verið vinaleikar hér í Öldutúnsskóla.  Á Vinaleikum er nemendum skólans blandað í hópa frá 1.bekk og upp í 10.bekk. Nemendur ferðast um skólann og vinna allskyns verkefni sem kennarar skólans skipuleggja.
Nemendur í 10. bekk og hluti af nemendum í 9. bekk verða fyrirliðar og passa upp á sína hópa.