Dagana 4. og 5.júni  verða Vinaleikar í Öldutúnsskóla. Á Vinaleikum er nemendum skólans blandað í hópa frá 1.bekk og upp í 10.bekk. Nemendur ferðast um skólann og vinna allskyns verkefni sem kennarar skólans skipuleggja.
Nemendur í 10. bekk og hluti af nemendum í 9. bekk verða fyrirliðar og munu passa upp á sína hópa.
Þessa daga þurfa nemendur að koma með nestið sitt í litlum bakpokum en þurfa ekki skólatösku.
Skóla lýkur 13:00  en Selið er opið eins og venjulega.

Ekki verður kennt eftir hefðbundinni stundatöflu og munu list- og verkgreinar og íþróttir og sund falla niður.